Á Víðivöllum í Skagafirði eru klappir utan og aðrar fyrir sunnan (bæinn). Kerling sem þar var sagði að í öðrum (ég trúi syðri) klöppunum væri vont huldufólk sem granda vildi bænum, en í hinum gott sem varnaði þess.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1955), Jón Árnason, III. bindi, bls. 21.