Hestlán

Tveir ferðamenn báðu Eirík einu sinni að ljá sér hesta að ríða yfir ósinn. Hann bað þá taka tvo hesta gráa er stæði á húsabaki og væri knýtt upp í þá snæri, þeim mætti þeir ríða út yfir sand og sleppa þeim þar. Þeir gjörðu svo, en er þeir leystu út úr þeim voru það ekki annað en tveir hrosshausar.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1955), Jón Árnason, III. bindi, bls. 506.

© Tim Stridmann