Leifi og bóndadóttir

Gísli Konráðsson segir frá viðskiptum Leifa við Eirík norska; hann hafði beðið dóttur bóndans á Dynjanda í Jökulsfjörðum, en hún neitaði; heitaðist þá Eiríkur við hana og sagðist skyldi senda henni legunaut. Þegar sendingin kom að Dynjanda var Leifi þar gestur; er þá sagt að Leifi brygði grasi því er fjandafæla (gnaphalium) heitir, vöfðu í varnarstöfum, milli draugsins og stúlkunnar svo hann komst ekki að henni. Síðan vakti hann yfir henni meir en hálfan mánuð; einu sinni sat hann á skörinni fyrir framan hana og stakk með löngum hnífi ofan fyrir pallstokkinn og kom með mannshryggjarlið upp á hnífsoddinum; þá var sagt niðri: „Stíkktu aftur.“ Þorleifur svaraði: „Ein bót nægir í senn.“ Síðan hvarf draugurinn og bóndadóttur batnaði.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 507.

© Tim Stridmann