Maður hét Jón og var Guðmundsson; hann bjó að Hellu á Árskógsströnd. Hann var haldinn mjög fjölkunnugur og vóru allir góðir menn hræddir við hann því það orð lék á að hann beitti kunnáttu sinni meir til að gjöra öðrum illt en til að vinna sér eður öðrum gagn; var hann því harla óþokkasæll.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 586.