Dóttir Sæmundar og kölski

Sæmundur fróði átti dóttur eina. Einhverju sinni þá Sæmundur var ei heima kom til hennar satan og sagðist eiga að taka hana. Stúlkan var þá stödd í lofti nokkru að reiða upp sæng föðurs síns. Hún sagðist skyldi með honum fara ef hann væri búinn að telja allar fjaðrirnar í sænginni hans föðurs síns fyrr en hann kæmi heim, en annars ekki. Satan játaði því og varð nú heldur hraðhentur, en í því bili sem hann hélt á þeim seinustu í hnefanum kom Sæmundur upp í stigann. Þá þorði ei satan við að standa og slapp hann því af stúlkunni í það sinni.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 470.

© Tim Stridmann