Í Grímsey er það sjómanna trú að þegar hámeri dregst þá megi hún ekki sjá yfir alla á bátnum því annars sjái hún einhvern feigan. Bregða menn þess vegna hjúpi sem fyrst fyrir augun á hámerinni. — Sá sem dregur hámeri, honum bregzt ekki afli það árið.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1956), Jón Árnason, IV. bindi, bls. 12.