Á Jónsmessunótt leita þeir sem á slíku hafa trú helzt að náttúrusteinum. Þá á líka að taka grös til lækninga. Að velta sér allsber í Jónsmessudögginni læknar ofsakláða og sumir segja líka kláða og fleiri óheilindi í holdinu.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1956), Jón Árnason, IV. bindi, bls. 23.