c. Peningaþúfa.

[Handrit Hreiðars Geirdals kennara 1908.]

Í túninu á Hafrafelli í Reykhólahreppi er þúfa, sem Peningaþúfa er kölluð. Seinast þegar eg sá hana, var hún eins og geit í sauðahóp, snögg og óræktarleg. Sagt er, að undir henni séu peningar fólgnir, en ekki má róta við þúfunni til að nálgast þá, því að þá drepst ein kýrin á bænum.

Источник: Gríma XXI. Tímarit fyrir íslenzk þjóðleg fræði. Ritstjórar: Jónas Rafnar og Þorsteinn M. Jónsson. Útgefandi: Þorsteinn M. Jónsson. Akureyri. 1946. Bls. 80.

OCR: Speculatorius

© Tim Stridmann