Reyniviðartréð í Möðrufelli1 er að sögn skammt (hér um bil þrjátíu faðma) frá bænum, þar uppi í hrauninu. Höfðu systkinin grafið sér undirgang úr búrinu upp í hraunið og er mælt að sjáist laut í völlinn. Mælt er að sjáist tvö ljós uppi í hrauninu þegar á einhver stórtíðindi veit. Sbr. „logaði ljós yfir systrum tveim“. Möðrufellstréð er alkunnugt.
1 Sbr. I. bd., 640.–641. bls.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1956), Jón Árnason, IV. bindi, bls. 20.