Ari í Miðhlíð

Þegar Davíð sýslumaður Scheving bjó í Haga á Barðaströnd var bóndi sá í Miðhlíð sem Ari hét, mjög efnalítill. Helzta eign hans var lítill bátur sem hann réri til fiskjar og vann sér björg með. Einu sinni í ofsaveðri fauk bátur Ara og brotnaði í spón. Litlu síðar finnur Ari sýslumann sem aumkar hann fátæklinginn fyrir missir bátsins. „Ég læt það vera,“ segir Ari, „Jón missti líka mikið af heyi.“ — Jón sá var mótbýlismaður Ara í Miðhlíð.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862), Jón Árnason.

Текст с сайта is.wikisource.org

© Tim Stridmann