I. Forn sögn

er það ein, að í gamalli kálfskinnsbók frá anno 400 post Christum natum standi, að Ísland hafi verið bygt af Írum, er hafi hingað út farið á 8 skipum og verið hér um 200 ár. Eptir það er mælt, að niðjar þeirra hafi hingað komið, er bygð áttu á Írlandi, og séð hér yfir 50 elda, og var þá útdautt hið gamla fólk, qvi delirabant dix. hinc ven. Tröll. Þar segir og um Siglubergsháls, sem skuli hafa verið í Grindavík. Þar skyldu Írskir hafa fest skipum sínum, þá hingað komu, og segja gamlir menn, að um stórfjörur megi þar sjá járnhringa fasta í sjávarklöppunum.1


1 Eptir handriti séra Friðriks Eggerz 1852.

Источник: Þjóðsögur og munnmæli (1899), Jón Þorkelsson, bls. 1.

© Tim Stridmann