Goðhóll

Í túninu á Klausturhólum, prestssetri í Grímsnessveit í Árnessýslu, er hóll einn eigi hár, en mikill um sig. Hóll þessi heitir Goðhóll (Goðahóll) og er sagt að í heiðni hafi þar staðið hof á hólnum. Kunnugur maður hefur sagt að tóft hafi sézt á hólnum svo sem 30 fet á lengd, en 10 á breidd. Nú er búið að slétta hólinn og sést eigi til tóftarinnar.

Vestan undir hólnum er leiði eitt; það snýr norður og suður; það er nokkuð hærra og lengra en leiði eru vanalega. Það er sagt að sé leiði Gríms þess er í landnámatíð féll undir Hallkelshólum1 sem nú heita Seyðishólar.


1 Landn. Ísl. s. I, 230.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1954), Jón Árnason, II. bindi, bl. 84.

© Tim Stridmann