CXI. Klukkusteinn.

[Eptir sögn Árna H. Hannessonar í Reykjavík 1899].

Skamt fyrir neðan Skiphyl, sem er bær í Hraunhrepp, er steinn einn á bakkanum við Hítará, og er hann því nær hnöttóttur og um 4 álnir í þvermál. Hann er kallaður Klukkusteinn; dregur hann nafn af því, að þegar slegið er í hann með einhverju hörðu, svo sem steini eða járni, þá syngur í honum eins og hann sé holur innan. Steinn þessi er grár að lit með hvítum og gráum smáögnum. — Það er mælt, að Þangbrandur prestur, er fyrstur boðaði kristni hér á landi, hafi komið skipi sínu í Hítará og fest því við stein þennan.

Источник: Þjóðsögur og munnmæli (1899), Jón Þorkelsson, bls. 149–150.

© Tim Stridmann