CXLIX. Ein lítil historía.

[Eptir handriti séra Finns Þorsteinssonar þá á Þaunglabakka (1857–63), síðast á Klyppstað (1870–88), í Landsbókasafni 417, 8vo].

Einu sinni var maður íslenzkur að kyni, er hraktist á flanderskri duggu til Grænlands. Honum lukkaðist að komast landveg á fæti yfir fjöll og jökla og öll öræfi og yfir alla hafsbotna alt úr Grænlands bygð og austur til Gandvíkur, og svo til Noregs. Hann leiddi með sér eina geit og fæddist á mjólk hennar. Hitti hann optast dali og mjó sund á milli jökla, svo geit hans gat haldist við gras eða skóg.

Источник: Þjóðsögur og munnmæli (1899), Jón Þorkelsson, bl. 207.

© Tim Stridmann