„Skal hér heim?“

Þegar svartidauði gekk var það um dagsetursbil að bóndi leit út í glugga og varð þess var að eitthvað tvennt reið fyrir ofan og heyrir að sagt er: „Skal hér heim?“ — „Nei, hér er gras í túninu sem við megum ekki koma nærri.“ Á þenna bæ kom svartidauði ekki.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1956), Jón Árnason, IV. bindi, bls. 139.

© Tim Stridmann