XI. Dauðra manna bein.

[Eptir sögn séra Friðriks Eggerz 1852].

Það er í sögnum, að ferðamaður einn, er var ofláti mikill, hafi eitt sinn um vetur komið að Stað á Ölduhrygg; stóðu menn þá að grepti þar í kirkjugarði, og höfðu líkmenn tekið gröfina. Hafði komið þar upp gröptur mikill og lágu mannabeinin á grafarbarminum. Var í þeim banakringla ein mikil. Oflátungur þessi gekk að gröfinni, og stakk broddstaf miklum, er hann gekk við, ofan í banakringluna, svo hún festist á broddinum, og mælti: „Svíradigur hefir hann verið sá arna, piltar!“ og hné niður dauður í sömu sporum.

Источник: Þjóðsögur og munnmæli (1899), Jón Þorkelsson, bls. 10–11.

© Tim Stridmann