Álfabátur á Svínavatni

Einhverju sinni einn vordag stóð hreppstjóri Þorleifur sál. Þorkelsson út á hlaðinu í Stóradal og sér hann þá bát á Svínavatni niður undan Sólheimum og fram undan hamri þeim er Beigull er nefndur (Beigaðarhóll, sjá Vatnsdælu1). Á bátnum voru fimm menn, tveir voru í andófi, en þrír greiddu net. Þorleifur sál. horfði á þetta langan tíma og tíu heimamenn hans, en í því kom kaupafólkið í hlaðið. Horfðu þá allir af og sáu eigi bátinn framar. Þá var enginn bátur á bæjum í kringum Svínavatn.


1 Ísl. s. VII, 39.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1955), Jón Árnason, III. bindi, bls. 14–15.

© Tim Stridmann