Það er fært í frásögur að einhvern tíma hafi horfið prestssonur frá Knappsstöðum í Stíflu. Var hann burtu í mörg ár. Þegar hann kom aftur sagðist hann hafa verið hjá huldufólki á Tungudal og væru kirkjusiðir þess líkir vorum.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 45.