Einu sinni var stúlka sem Anna hét grafin í Miðgarðakirkjugarði í Grímsey. Kvöldið sama heyrði einhver sem úti var eða út kom veinhljóð þrjú í kirkjugarðinum. En um það var ekkert skeytt frekar og hefur Ólafur svo frá sagt að sér verði sú saga lengst í minni.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 221.