Þegar svartidauði geisaði á Íslandi komst hann aldrei á Vestfjörðu því tólf galdramenn vestra tóku sig saman og mögnuðu allir sendingu á móti honum. En svartidauði lagði yfir landið eins og gufa sem náði upp í miðjar hlíðar og út á mið fiskimið; réðu fyrir gufunni karl er fór með hlíðum og kerling er fór með löndum fram. Gistu hjón þessi hjá kotbónda nokkrum á Svalbarðsströnd; þótti bónda þau heldur ískyggileg og vakti um nóttina þó hann létist sofa; heyrði hann þá hvernig þau ráðgjörðu að haga ferðum sínum um daginn til þess að eyða byggðina og um morguninn voru þau horfin. Bóndi brá þá við og fann Grundar-Helgu er var landsdrottinn hans og sagði henni hvers hann hefði orðið var. Tók hún þá ráð það að flytja sig og fólk sitt á fjöll upp og dugði það sem kunnugt er orðið. Þegar gufan og manndauðinn tók að færast vestur eftir höfðu galdramennirnir sendinguna tilbúna; var hún graðungur mikill fleginn ofan að knjám og dró hann húðina eftir sér; hitti hann karl og kerlingu undir klettum í fjöru við Gilsfjörð þar sem leiðir þeirra urðu að liggja saman; sáu skyggnir menn aðgang þeirra og lauk svo að uxinn kom þeim inn undir húðina, lagði þau undir og kramdi þau sundur. Til minningar um morðvarga þessa var þetta ort:
„Tak upp þrítenntan tannforkinn,
ét mörbjúgun þrjú hér og þar,
og með lensu uppgötva1
ár þá svartidauði var.“2
Þrítennti forkurinn er M, mörbjúga C, lensa L.
1 Uppteikna, aðrir.
2 [Tvö fyrstu vísuorðin eru svo í Þjs.: Þrífðu forkinn þrítennta, þrjú mörbjúgun einnig þar.] — Eftir þessu ártali er svartidauði talinn 1350 eins og hann gekk um Norðurálfuna, en hann kom ekki fyrr en 1402 út hingað eins og Árb. Esp. sýna, I, 122. bls.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 334.