Einar hét prestur, son Nikulásar á Héðinshöfða Einarssonar. Einar prestur hélt Skinnastaði. Þorbjörg hét kona hans, dóttir Jóns prests Þorvarðssonar; voru þeirra synir Jón prestur kallaður greipaglennir og Þórarinn kallaður Galdra-Þórarinn er sagt er að hefði sagnaranda.
Einar prestur var fjölkunnugur mjög og fyrir því var hann galdrameistari kallaður og það með að fjölkynngi kenndi hann sonum sínum.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 513.