Saga um Kálf Árnason

(sem einu sinni er sagt að hafi búið á Laxlæk.) (Austan úr Múlasýslu.)

Þegar Kálfur Árnason var í Svarta-skóla, er það sagt, að hann hafi gefið sig kölska. En þegar hann var kominn aptur til Íslands, vildi hann fyrir alla muni losast við þetta loforð sitt, en vissi ekki, hvernig hann ætti að fara að því. Hann tekur það þó til ráðs, að hann fór að hitta Sæmund fróða, og biður hann ráða úr þessu vandræði sínu. Sæmundur rèð honum, að hann skyldi ala tarfkálf, og nefna hann Árna, síðan skyldi hann ala annan kálf undan þessu nauti, og kalla hann Kálf, og „sè það Kálfur Árnason.“ Kálfur gjörir þetta, sem Sæmundur hafði honum ráð til kent. En nokkru eptir kemur kölski, og segist vilja fá Kálf Árnason. Kálfur segir, að svo skyldi vera; tekur hann þá kálfinn, er hann hafði alið, fær hann kölska og segir: „Þarna hefir þú Kálf Árnason.“ Kölski gat ekki geingið í móti því, en þókti ekki haldið við sig loforðið, og varð þó að láta sèr það líka, að hann hafði ekki meira af Kálfi Árnasyni, er dó í góðri elli.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri, safnað hefir Jón Árnason. Leipzig, að forlagi J. C. Hinrichs’s bókaverzlunar, 1862.

© Tim Stridmann