Fúsi ljær árum höfuðfat sitt

Leirulækjar-Fúsi (Vigfús) var bæði fjölkunnugur og líka ákvæða- eða kraftaskáld. Einhvern tíma hitti kunningi Fúsa hann berhöfðaðan út í túni, en hvasst var svo hann undraði þetta og spurði því hann væri berhöfðaður, en Fúsi sagði að hann hefði léð árum sínum höfuðfat sitt til þess að leika sér að.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 520.

© Tim Stridmann