CXXXII. Kölski gerir til sauði fyrir Sæmund prest.

[Eptir handriti Jóns Sigurðssonar í Steinum 1862–64 í Landsbókasafni 421. 8vo.]

Einu sinni átti Sæmundur fróði sauði marga ótilgerða. Kallar hann þá á kölska og bað hann gera þá til og flýta sér, og lofar honum ærnu kaupi. En kölski vill ekki annað hafa en Sæmund sjálfan. Lofar Sæmundur því, ef hann geri svo vel til, að ekki yrði að fundið. Kölski tók nú til starfa og fló undramikið og vel, svo ekki varð að fundið, og varð hann nú hróðugur að leiks lokum, og kvaðst nú eiga Sæmund. Sæmundur játti því, ef ekkert væri vangert. En er hann aðgætti innýflin, vantaði krossana í hjarta og lifur, og varð hann svo af kaupinu.

Источник: Þjóðsögur og munnmæli (1899), Jón Þorkelsson, bl. 187.

© Tim Stridmann