Af Höllu og Elínu

Í Straumfirði á Mýrum bjó [einu sinni1 kona sem hét Halla. Hún var fjölkunnug mjög og forn í skapi.2 Hún átti systur sem hét Elín og bjó í Elínarhöfða í Vogum undir Akrafjalli. Þegar þær töluðust við systurnar og töluðu hljóðskraf þá stóð Halla á bjarginu hjá Straumfirði, en Elín á Elínarhöfða, og heyrði enginn hvað þær töluðu.


1 Frá [ J. Á.: „um það leyti er svartidauði gekk hér yfir land (eftir 1400)“.

2 Sjá Árb. Esp., II, 36, 44. [J. Á.]

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862), Jón Árnason.

Текст с сайта is.wikisource.org

© Tim Stridmann