Ef menn vilja verða auðugir af því að stela mjólk eða ull frá öðrum hafa menn fundið hentugt ráð til þess; en það er með því að hafa tilbera eða snakk.
Tilberi og snakkur1 er allt eitt; svo er og bæði nefnt „tilberasmér“ og „snakkssmér“. Aftur á móti er það kallað „tilberaverk“ sem illa þykir stofnað eða ankringislega. Tilberi merkir þann sem ber eitthvað til manns, en snakkur þýðir upphaflega vefjarspóla. Er fyrra heitið dregið af verknaðinum, en hið síðara af tilbúningnum. Það segja fróðir fræðimenn að tilberi sé svo undir kominn að kona stelur rifbeini úr dauðum manni í kirkjugarði á hvítasunnumorgun þegar grafið er; vefur hún það síðan í sauðarull grárri eða bandi2 sem hún stelur annarstaðar; aðrir segja að tilberamæður reyti hý af herðakambi á nýrúinni kind sem ekkja á og vefji þar í rifið svo þetta er að öllu útliti sem ullarvindill og lætur það liggja um hríð á brjóstum sér. Eftir þenna umbúnað fer hún þrisvar til altaris og dreypir í hvert sinn víni því er hún bergir, aðrir segja bæði brauðinu og víninu, á tilberaefnið með því að spýta því út úr sér í barm sér og kjaft tilberanum sem sumir segja að sé einungis á öðrum enda tilberans, en flestir á báðum endum. Hið fyrsta sinn er konan dreypir á tilberann liggur hann grafkyrr, en í annað sinn hreyfist hann og hið þriðja sinn er hún dreypir á hann verður hann fullmagnaður og svo fjörmikill að hann ætlar að spretta fram úr barmi hennar. Má þá konan gjalda varhuga við að tilberinn ekki sjáist.
Sú hegning er sagt að hafi verið lögð við ef konur urðu uppvísar að því að hafa tilbera að þær voru brenndar með tilberanum á sér eða þeim var drekkt; svo þótti það athæfi illt og óguðlegt. En ekki þóttu órækar sannanir fyrir því nema tilberinn væri eltur upp undir þær og voru pilsin annaðhvort bundin að þeim eða saumuð fyrir neðan tilberann og hvoru tveggja svo fyrirkomið á þann hátt. Þegar tilberinn er orðinn fullmagnaður á þann hátt sem nú var sagt þolir konan hann ekki lengur á brjósti sér; vökvar hún sér þá blóð innan lærs og gjörir þar sepa á og lætur hann sjúga sig þar fastan; þar lifir hann og nærist á blóði konunnar ávallt er hann er heima3 og á því þekkjast tilberamæður að þær eru haltar og hafa blóðrauða vörtu, líka spena, innanlærs. Þó virðist það og hafa tíðkazt að tilberamæður hafi haft þá í tómum kerum eða tunnum í búrinu, að minnsta kosti stundum. Þegar tilberamóðir á barn og mjólk er í brjóstum hennar ásækir hann hana sjálfa. Liggur þá líf hennar við ef hann nær að sjúga brjóst hennar því hann sýgur hana til dauðs.
Tilberar hafa verið hafðir til þess að láta þá sjúga kýr annara manna, en sumir segja einnig ær úti um haga; koma þeir svo á málum á búrgluggann hjá mömmu sinni á meðan hún skekur strokk sinn. En þær hafa svo um búið að strokkurinn standi, meðan hann er skekinn, rétt undir búrglugganum. Þegar tilberinn kemur á búrgluggann kallar hann inn og segir: „Fullur beli, mamma“ — eða: „af strokkvör (munnagjörðina), mamma.“ Tekur þá konan lokið af strokknum og segir: „Ældu, sonur sæll“ — eða: „gubbaðu í strokkinn, stráki,“ og enn hafa aðrir svo: „Láttu lossa, sonur.“ Ælir hann þá öllu því er hann hefur sogið ofan í strokk mömmu sinnar svo nóg kemur smér í strokk hennar. Smér það er verður af tilberaspýjunni er kallað tilberasmér; er það útlits sem annað smér; en gjöri maður krossmark yfir því eða risti á það kross eða mynd þá er smérhnútur heitir4 springur það allt í smámola og verður eins og draflakirningur svo ekki sést eftir af því nema agnir einar eða það hjaðnar niður sem froða. Þykir það því varlegra ef manni er boðið óhrjálegt smér að borða eða í gjöld að gjöra annaðhvort þetta mark á það því tilberasmér þolir hvorki krossmark né smjörhnút.
Það hefur og borið við að tilberar hafa ekki kunnað sér magamál og sogið meira en þeir hafa verið færir um með heim á búrgluggann til mömmu sinnar; spúa þeir þá á miðri leið. Þessa tilberaspýju hafa menn oft þótzt sjá í móum um heiðartíma (þ. e. grasafjallstíma); er hún hvítgul á lit og þykk. Þegar tilberi sýgur málnytupening fer hann svo að því að hann hleypur upp á bakið á honum og vefur sig yfir malirnar á skepnunni; verður hann þá svo langur að hann nær beggja vegna til spenanna og sýgur svo með báðum endum. En þeir sem segja að tilberinn ekki hafi nema einn kjaft segja að hann snúi sér við á mölunum á skepnunni þegar hann sé búinn að þurrsjúga spenana öðrumegin, og taki svo til aftur hinumegin. Oft ber það við að mjólkurkýr og mjólkurær fá illt í júgrið svo að þau stokkbólgna, en skepnan verður nytlaus eftir og þrífst stundum ekki svo það verður að skera hana. Þessi júgurveiki er kölluð undirflog og hefur það verið trú manna að slíkt væri að kenna mjólkursugum tilbera ef það er á kúm.5 Til varnar við undirflogum er það tíðkað enn sumstaðar að krossa undir júgrið og yfir malirnar á mjaltapeningi og leggja Davíðssaltara yfir hrygginn.6
Til fleira mátti bregða tilberum en til að sjúga málnytupening einungis því þeir voru og hafðir til að stela ull þó þess sé sjaldnar getið. Einu sinni um vor var búið að þvo alla ull sem til var á einum bæ. Þurrkur var góður um daginn og var ullin öll í stórri breiðu á túninu. Um kvöldið leit út fyrir þerrir og gott veður og því var ullin ekki svo mikið sem tekin saman, því síður látin inn. Um morguninn þegar á fætur var komið sýndist eins og ullinni væri eitthvað hróflað til, en þegar farið var að gæta að betur vissu menn ekki fyrri til en þeim sýndist ullin öll þyrlast saman í einn vindil mikinn og því næst fer allur ullarbingurinn á stað eins og hann var sig til nema litlar dreifar, og var það eitt sem bóndi náði af henni því hinn mikli ullarvindill valt svo hratt áfram að enginn kostur var að fylgja honum og komst brott úr sýn, og var það trú manna að þetta hefði verið tilberi sem hefði vafið um sig ullinni og farið burt með hana.
Þegar tilberamóðir eldist og lýist gengur tilberinn svo nærri henni að hún þolir ekki að láta hann sjúga sig lengur í gegnum lærspenann; sendir hún hann þá upp á fjöll og skipar honum að tína þar saman lambaspörð á þremur afréttum og sprengir hann sig á því; því hann vill allt til vinna að komast sem fyrst heim til mömmu sinnar, en ætlar sér ekki af. Hafa menn talið það til sanninda um sögu þessa að oft hafi fundizt mannsrif við lambasparðahrúgur uppi á afréttum. Tilberar eru ákaflega fljótir og þjóta yfir holt og hæðir. Sýnast þeir ýmist velta eins og hnoða eða ullarvindill ellegar þeir stingast á endum. Dæmi eru sögð til þess að menn hafi riðið þá uppi, en þó varla nema á afbragðs léttum hestum sem nú skal greina.
1 Tilberi heitir hann á Norðurlandi, en snakkur á Vestur- og Suðurlandi, en á Austurlandi hvort tveggja.
2 Jón Bjarnason í Breiðuvík í Múlasýslu kallar ullar- eða bandvafninginn utan um mannsrifið „snakk“ og kemur það allvel heim við frummerkingu í orðinu snakkur hjá Birni Halldórssyni (Lexicon Islandico-Latino-Danicum, Havniæ 1814) sem getið er hér að ofan.
3 Jón Bjarnason segir að tilberamæður hafi látið þá liggja utan um holið á sér fyrir neðan brjóstin milli þess þær sendu þá erinda sinna; hins sama er og getið í sögnum úr Skaftafellssýslu.
4 Smérhnútur er svo í lögun:
.
5 Réttnefndara mun undirflog á ám en kúm og er sú ástæða til þess að sumir menn halda að það sé steindeplinum að kenna og geri hann það til hefnda fyrir það ef eggin hans eru ómökuð á vorin að hann fljúgi undir ærnar á þeim bæ á sumrin. Önnur orsök er sú til undirflogs á ám að þær leggist þar sem „óhreint sé“.
6 Til skamms tíma [þ. e. fram um miðja 19. öld] í Skaftafellssýslu, líklega hinni eystri.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, I. bindi, bls. 417–419.