Björn lögmaður Markússon og Skúli landfógeti Magnússon gengu eitt sinn af skipi upp í Viðey og leiddust upp götustíginn; en er þeir komu upp á túnið þraut lögmann gönguna; hann var feitur og mikið klæddur; stjaldrar hann við og blæs mæðinni; þá segir Skúli: „Skrattans góður smali værir þú.“ Lögmaður skaut þá upp öndinni og svarar: „Það væri ég ef ég hefði þig fyrir hund.“
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 425.