„Einn skrattinn er hjá mér“

Gunnar prófastur Pálsson í Hjarðarholti1 hafði eitt sinn í predikun sinni þetta algenga máltak: „Víða er pottur brotinn.“ Þessu gegndi Brynjólfur bóndi í Ljárskógum sem sat við altarishornið: „Það er satt séra Gunnar, einn skrattinn er hjá mér botnlaus í smiðjuglugganum.“


1 Gunnar Pálsson (1714–1791) skólameistari á Hólum (1742–1753) var prestur í Hjarðarholti 1753–1784.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 354–355.

© Tim Stridmann