Ósk Gríms Bessasonar

Grímur Bessason prestur1 óskaði sér: „Ég vildi ég ætti mér svo stóra brennivínstunnu að himinn og jörð væri sponsinn í!“ „Hvar ætlaðir þú þá að vera?“ sagði annar. „Við sponsinn,“ sagði Grímur.


1 Grímur Bessason (1719–1785) var prestur á Ofanleiti í Vestmannaeyjum (1745–48), í Ási í Fellum (1748–62), á Eiðum (1762–74) og síðan á Hjaltastað til dauðadags.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1958), Jón Árnason, V. bindi, bls. 413.

© Tim Stridmann