„Svei þér nykur“

Eitt sinn sá smalastúlka gráan hest og ætlaði að fara að taka hann, en þá verður henni litið ofan á fæturna á honum og sér hún að hófarnir snúa öfugt á honum. Sér hún þá að það er nykur og segir: „Já, svei þér, nykur.“ Þá hvarf nykurinn.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1955), Jón Árnason, III. bindi, bls. 210.

© Tim Stridmann