Barnafell er kallað í Bárðardal; það fell er ekki langt frá hinum mikla og fagra Goðafossi í Skjálfandafljóti. Undir fellinu er annar foss sem dregur nafn af því og heitir Barnafellsfoss. Einu sinni voru börn að leika sér með tunnu uppi á fellinu, fóru inn í hana og komu á hana veltu af vangá. En tunnan valt ofan eftir hlíðinni sem er bæði grasi vaxin og snarbrött, ofan í fossinn, og drukknuðu börnin þar. Af þessu dregur fossinn síðan nafn og fellið einnig, en áður hét það Miðfell.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, II. bindi, bls. 105.