Illþurrka

Á innanverðu Skarðinu milli Skarðs og Búðardals þar sem vötnum hallar er dys og varða sem heitir Illþurrka og eiga allir sem í fyrsta sinni ríða þar hjá að taka stein af hestbaki og kasta í dysina. Undir dysinni er sagt að sé galdrakona eður völva; hún vildi ekki láta grafa sig að kirkju; heldur þar sem hvorki heyrðist klukknahljóð frá Búðardal né Skarði; frá Illþurrku ber og leiti á milli og kirkjunnar í Búðardal.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1954), Jón Árnason, II. bindi, bls. 91.

© Tim Stridmann