Steinninn á Hofi

Hof er næsti bær fyrir framan Goðdali í Skagafirði. Fyrir utan bæinn sést móta fyrir hústóft, sem nú er grasi vaxin og sést á stöku stað steinalagið standa upp úr; þar skal hofið hafa staðið. Þegar grafið var í þessa tóft kom upp úr henni steinn nokkur stór og er klappaður djúpur bolli kringlóttur ofan í steininn (gæti það ekki verið hlautbolli og brúkaður við blótið?). Steinn[inn] er nú settur í norðurkamp bæjardyranna. Ég skoðaði hann í haust.

Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1956), Jón Árnason, IV. bindi, bls. 119.

© Tim Stridmann