Útsunnan til í Laxárholtstúninu er steinn einn mikill, meir en tíu faðmar ummáls og seilingarhæð manns þar sem hann er hæstur, því nær ferskeyttur; hann er sléttur að ofan og flatur. Sá steinn er nefndur Valdísarsteinn og reiturinn sem hann er í Valdísarreitur — eftir konu einni í fornöld sem sagt er verið hafi í Laxárholti.
Источник: Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (1956), Jón Árnason, IV. bindi, bls. 112.